Velkomin á tjaldsvæðið Borg
Tjaldsvæðið Borg er vel staðsett, í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni, umkringt náttúrufegurð og fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum.
Hér finnur þú allt sem þú þarft fyrir fullkomna útilegu.
Hvort sem þú vilt slaka á í rólegu umhverfi eða leita ævintýra með fjölskyldunni.
Afþreying og aðstaða
Nýtt og rúmgott grillskýli er að finna í fallega Yndisskóginum fyrir ofan tjaldsvæðið.
Sundlaugin Borg er við tjaldsvæðið, tilvalin til að kæla sig niður á heitum sumardögum.
Við skólann er leiksvæði fyrir börn ásamt battavelli sem tryggir ótakmarkaða skemmtun.
9 holu frisbígolfvöllur er staðsettur í Yndisskóginum ofan við tjaldsvæðið.
Þægileg sturtuaðstaða er í boði fyrir þá sem dvelja á tjaldsvæðinu.
Svæðið er vel búið rafmagni og því er yfirleitt ekkert vandamál að komast í rafmagn hjá okkur.
Þvottaaðstaða með heitu og köldu vatni er staðsett við þjónustuhús.
Á tjaldsvæðinu eru bekkir og borð til staðar á nokkrum stöðum sem gestir geta nýtt sér.
Nálægir áfangastaðir
Hvort sem þú ert að leita að menningu, mat, skemmtun eða slökun, þá er margt að skoða í nágrenninu.
Hér eru nokkrir spennandi áfangastaðir til að gera dvölina enn betri.
Heimsækið Sólheima þar sem menningarveislan er í fullum gangi alla laugardaga yfir sumarið. Alltaf eitthvað nýtt að sjá og upplifa. Þar er líka frábært kaffihús.
Tjaldsvæðið Borg er vinsælt “base” fyrir golfara. Golfvellirnir í Hraunborgum, Kiðjabergi og Öndverðarnesi eru skammt frá fyrir þá sem vilja taka golfhring í útilegunni.
Við hvetjum okkar gesti til að kíkja á nýja miðbæinn á Selfossi. Í nýja miðbænum eru fjölbreyttir veitingastaðir, kaffihús og verslanir. Á Selfossi eru líka matvöruverslanir á borð við Bónus, Krónuna og Nettó.
Minni-Borgir veitingahús er staðsett örstutt frá tjaldsvæðinu. Ef þið elskið eldbakaðar pizzur þá mælum við með að kíkja í Þrastalund en sumir segja að þar fáist bestu eldbökuðu pizzurnar á Íslandi.
Í Friðheimum er hægt að fá tómatsúpu og nýbakað brauð ásamt öðru góðgæti í notalegu umhverfi í gróðurhúsi.
Við mælum eindregið með að kíkja í ísbíltúr með krakkana á sveitabæinn Efstadal.
Tjaldsvæðið Borg er vel staðsett, í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni, umkringt náttúrufegurð og fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum.
Hér finnur þú allt sem þú þarft fyrir fullkomna útilegu, hvort sem þú vilt slaka á í rólegu umhverfi eða leita ævintýra með fjölskyldunni.
Fullorðnir
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar
0-15 ára
Gistináttaskattur per einingu
Rafmagn
2.300 kr.
2.000 kr.
Ókeypis
400 kr.
1.600 kr.
Upplifðu frelsið, kyrrðina og skemmtunina á tjaldsvæðinu Borg. Við hlökkum til að taka á móti þér!
Hjá okkur er 20 ára aldurstakmark. Þeir sem eru yngri en 20 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Þú bókar og gengur frá greiðslu í gegnum bókunarsíðuna okkar reisa.is/borg.
Tjaldsvæðið okkar opnar 1. maí og lokar 30. september.
Nei, því miður tökum við ekki við Útilegukortinu.
Það er ekki grill á tjaldsvæðinu sjálfu en það er kolagrill sem hægt er að nota í bálhýsinu ofan við tjaldsvæðið. Gestir þurfa að koma með eigin kol.
Tjaldsvæðið er staðsett á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Við hlið sundlaugarinnar, skólans og félagsheimilisins.
Já það er mikið af rafmagnstenglum á tjaldsvæðinu okkar. Gangið úr skugga um að velja rafmagn þegar þið bókið ykkur stæði ef þið þurfið að komast í rafmagn.
Nei, því miður er enginn aðgangur að eldhúsi á tjaldsvæðinu.
Já, það er aðgangur að þvottavél á tjaldsvæðinu.
Já, aðgangur að sturtu er innifalinn í verðinu.
Já, aðgangur er að hárþurrku þar sem sturtan er staðsett.
Já, heimilt er að vera með hunda á tjaldsvæðinu en skilyrði er að þeir þurfa að vera bundnir. Gæta skal þess að hirða upp eftir þá.
Sundlaugin Borg er staðsett við hlið tjaldsvæðisins. Jafnframt er nýja baðlónið Laugarás Lagoon skammt frá.
Já, það eru mörg ættarmót hjá okkur á hverju sumri. Vinsamlegast sendið fyrirspurn hér í gegnum síðuna eða með tölvupósti á tjaldborg@tjaldborg.is varðandi möguleika á að halda ættarmót.
Já við erum með langtímastæði í boði. Hafið samband til að fá frekari upplýsingar.
Sendu okkur skilaboð og við svörum þér eins fljótt og auðið er.